Námskeiðshlutar
1. Verið velkomin!
1.1 Velkomin!
1.2 Farið í gegnum námskeiðið
1.3 Nokkrar spurningar
2. Að hjálpa þér og barninu í gegnum meðgöngu og fæðingu
2.1 Tilfinningar á meðgöngu
2.2 Hver er í kringum þig?
2.3 Hvernig líður þér í dag?
2.4 Hver hjálpar þér og á hvaða hátt?
2.5 Að kunna að vinna með tilfinningar
2.6 Hvernig slakar þú vanalega á?
2.7 Slökun og öndun fyrir alla
2.8 Öndun
2.9 Aðrar leiðir til að slaka á
2.10 Mismunandi tegundir slökunar
2.11 Að slaka á eftir fæðingu
2.12 Spurningar í lok námskeiðshluta
2.13 Heimavinna
3. Að kynnast barninu í móðurkviði
3.1 Velkomin!
3.2 Hvernig gekk heimavinnan?
3.3 Að kynnast barninu
3.4 Þroski barnsins
3.5 Barnið í móðurkviði
3.6 Þroski heilans
3.7 Staða barnsins í móðurkviði
3.8 Barnið gerir sig tilbúið fyrir fæðingu
3.9 Tengsl þín við barnið og þroski þess
3.10 Spurningar í lok námskeiðshluta
3.11 Heimavinna
4. Þú, barnið og stig fæðingar
4.1 Velkomin!
4.2 Hvernig gekk heimavinnan?
4.3 Tilfinningar í fæðingu
4.4 Merki um að fæðing sé hafin
4.5 Fyrsta stig fæðingar
4.6 Annað stig fæðingar
4.7 Þriðja stig fæðingar
4.8 Áhaldafæðingar
4.9 Fæðing færð yfir á skurðstofu
4.10 Spurningar í lok námskeiðshluta
4.11 Heimavinna
5. Að hjálpa þér og barninu í gegnum fæðingu
5.1 Velkomin!
5.2 Hvernig gekk heimavinnan?
5.3 Stuðningur í fæðingu
5.4 Stellingar og bjargráð í fæðingu
5.5 Verkjastilling
5.6 Aðstoð eftir að heim er komið
5.7 Spurningar í lok námskeiðshluta
5.8 Heimavinna
6. Brjósta- og pelagjöf
6.1 Velkomin!
6.2 Hvernig gekk heimavinnan?
6.3 Brjósta- og pelagjöf
6.4 Kostir brjóstagjafar
6.5 Hversu oft skal gefa
6.6 Blönduð gjöf
6.7 Brjóstamjólk og barnið þitt
6.8 Barn lagt á brjóst, tak á geirvörtu, mjólkun og loft í maga
6.9 Gjöf er hluti af tengslasambandinu
6.10 Spurningar í lok námskeiðshluta
6.11 Heimavinna
7. Hver er orðinn pabbi? Ég!
7.1 Velkomin!
7.2 Tími föður með barni
7.3 Feður og brjóstagjöf
7.4 Feður og skoðanir annarra
7.5 Spurningar í lok námskeiðshluta
8. Eftir að barnið fæðist
8.1 Velkomin!
8.2 Samband þitt við maka þinn
8.3 Hvers vegna gráta börn?
8.4 Að sefa barnið
8.5 Öryggi barna
8.6 Sængurkvennagrátur
8.7 Styrktu tengslin við barnið
8.8 Spurningar í lok námskeiðs
9. Til hamingju!
9.1 Vel af sér vikið!
9.2 Hver er staðan núna?
9.3 Þakkir
Um námskeiðið
Það eru mikilvægu tengslasamböndin í lífi barns sem móta tilfinningalega heilsu þess og velferð. Þessi mótun hefst á meðan barnið vex og þroskast í móðurkviði. Á meðgöngunni þroskast skynfæri barnsins og heilinn er strax byrjaður að gera milljónir tenginga í þeim tilgangi að búa barnið undir að koma í heiminn.
Að skilja meðgönguna, fæðingarferlið og ungbarnið er ætlað öllum foreldrum, ömmum, öfum og umönnunaraðilum sem eru að fara að taka á móti nýju barni. Námskeiðið er hannað til að gefa allar þær upplýsingar og ráðleggingar sem veittar eru í hefðbundinni meðgöngu- og fæðingarfræðslu, en þar að auki er lögð áhersla á geðræna og tilfinningalega velferð ykkar og barnsins.
Námskeiðið Að skilja meðgönguna, fæðingarferlið og ungbarnið var útbúið af teymi klínískra sálfræðinga, barnasálfræðinga og hjúkrunarfræðinga í samvinnu við bæði ljósmæður og foreldra. Allt sem fram kemur á námskeiðinu er byggt á reynslu og er ætlað að nýtast ykkur og fjölskyldu ykkar í daglegu tilfinningalífi og athöfnum. Þið lærið um undirstöðuatriði geðrænnar heilsu og velferðar, hvernig heili okkar þroskast í frumbernsku og hvaða þýðingu það hefur fyrir tjáningu og tengslamyndun ungbarna.
Námskeiðið skiptist í 9 hluta sem bútaðir eru niður í kafla. Hver hluti tekur um 20 mínútur að fara í gegnum. Þið fáið verkfæri, tilfinningalegan stuðning og ráðleggingar. Hér má til dæmis nefna upplýsingar um verkjastillandi meðferðir, stellingar í fæðingu, öndun, undirbúning fyrir heimkomu eftir fæðingu, brjósta- og pelagjöf og hvernig hægt er að hugga og tengjast barninu. Einnig er kafli sem sérstaklega er ætlaður feðrum.
Í fyrstu hlutunum er lögð áhersla á að styðja og styrkja ykkur og tilfinningar ykkar varðandi meðgönguna. Þessir fyrstu hlutar leggja grunninn að því efni sem kemur síðar, þannig að best væri að vinna sig í gegnum hlutana í réttri röð. Þið þurfið ekki að fara í gegnum allt námskeiðið í einni lotu og mælum við eindregið með að taka hlé inn á milli og gefa sér tíma í að læra og prófa nýja hluti.
Að skilja meðgönguna, fæðingarferlið og ungbarnið hentar öllum foreldrum, sama hverjar aðstæður þeirra eru, en mögulegt er að ykkur finnist þið þurfa aðeins sérhæfðari eða persónumiðaðri aðstoð. Ef svo er finnið þið vísanir í frekari upplýsingar hér og þar í námskeiðinu sem geta gagnast ykkur.
Fjölskyldur eru ólíkar á svo margan hátt, svo sem að stærð, gerð og menningarlegum uppruna. Við höfum reynt að taka tillit til þessa eins vel og hægt er. Ef ykkar persónulegu aðstæður endurspeglast ekki í efninu vonumst við samt sem áður til að þið hafið gagn af grunnhugmyndunum um mótun og eflingu náinna tengsla og sambanda milli foreldra og barna. Allar ábendingar um hvernig bæta mætti námskeiðið eru vel þegnar.

