Námskeiðshlutar
1. Barnið ykkar þroskast á ákveðinn hátt
1.1 Velkomin!
1.2 Hvernig líður ykkur í foreldrahlutverkinu í augnablikinu?
1.3 Hvernig líður ykkur sem foreldrar?
1.4 Hvernig líður ykkur sem foreldri á slæmum degi?
1.5 Meira um tilfinningar og hegðun
1.6 Styrkið samband ykkar við barnið
2. Heilaþroski
2.1 Svona þroskast heilinn
2.2 Myndband: Reynslan stýrir uppbyggingu heilans
2.3 Heilaþroski barns: Hvað þýðir þetta allt saman?
2.4 Mikilvægi heilaþroska fyrstu árin
2.5 Myndband: Sending og svörun móta straumrásir heilans
2.6 Áhrif mikillar streitu og álags
2.7 Reynsla barna og heilinn
2.8 Heilaþroski í barnæsku
2.9 Heilaþroski unglinga
2.10 Samantekt
2.11 Nú er komið að ykkur!
3. Að skilja hvernig barninu líður
3.1 Hvernig gekk heimaverkefnið?
3.2 Í hegðun felast samskipti
3.3 Hvernig vitum við að við erum glöð?
3.4 Hvernig vitum við að við erum döpur?
3.5 Hvernig vitum við að við erum þreytt?
3.6 Hvernig vitum við að við erum kvíðin?
3.7 Að skilja hvenær barnið ykkar er glatt
3.8 Að skilja hvenær barnið ykkar er dapurt
3.9 Að skilja hvenær barnið ykkar er þreytt
3.10 Að skilja hvenær barn ykkar er kvíðið
3.11 Tilfinningar barnsins
4. Að lesa í hegðun
4.1 Að lesa í hegðun
4.2 Reynsla annarra foreldra
4.3 Að lesa í hegðun barns í þessum kringumstæðum
4.4 Horfa, hugsa, segja!
4.5 Hvernig okkar hegðun hefur áhrif á börnin
4.6 Að lesa í hegðun getur verið snúið
4.8 Spurningarnar þrjár
4.9 Samantekt
4.9 Samantekt
4.10 Nú er komið að ykkur!
5. Að stilla sig inn á þarfir barnsins
5.2 Hvernig gekk heimaverkefnið?
5.3 Að stilla sig inn á þarfir barnsins
5.3 Að stilla sig inn á þarfir barnsins
5.4 Upprifjun á heilaþroska
5.5 Íhugum þroskaferli barnsins
5.6 Hjálpum við að læra nýja færni: í þeirra spor
5.7 Hvað þarf til að læra nýja færni?
5.8 Setjum okkur í þeirra spor
5.9 Þroskaáfangarnir
5.10 Samantekt
5.11 Nú er komið að ykkur!
6. Unnið úr tilfinningum
6.1 Þroskaferlið
6.2 Hvernig gekk heimaverkefnið?
6.3 Verri líðan
6.4 Betri líðan
6.5 Umhygð: grunnatriðin
6.6 Meira um umhygð
6.7 Hvað getur gerst þegar við höfum áhyggjur?
6.8 Búum til hugarrými
6.9 Hvernig við tjáum tilfinningar
6.10 Tilfinningarnar
6.11 Gera hlutina öðruvísi
6.12 Hugsum um hvernig við segjum hlutina
6.13 Styrkjum umhygð í samböndum
6.14 Nú er komið að ykkur!
7.8 Mismunandi uppeldishættir og aðferðir
7.1 Það sem við höfum skoðað fram að þessu
7.2 Hvernig gekk heimaverkefnið?
7.3 Samantekt fram að þessu
7.4 Uppeldishættir
7.5 Það sem þið viljið einnig veita ykkar börnum
7.6 Uppeldisaðferðir
7.7 Mismunandi uppeldisaðferðir
7.8 Leiðandi uppeldishættir: Að finna jafnvægið
7.9 Nú er komið að ykkur!
8. Að hafa gaman saman
8.1 Yfirlit
8.2 Hvernig gekk heimaverkefnið?
8.3 Leikur er lærdómur
8.4 Leikur getur styrkt sambönd
8.5 Mismunandi leiðir til að leika
8.6 Skoðum aðra leið til að leika
8.7 Frekari ávinningur leiks
8.8 Samantekt
8.9 Nú er komið að ykkur! 1. hluti
8.10 Nú er komið að ykkur! 2. hluti
9. Hrynjandi samskipta
9.1 Yfirlit
9.2 Hvernig gekk heimaverkefnið?
9.3 Samskipti milli fullorðinna
9.4 Að skilja gagnkvæmnisdansinn
9.5 Í dansinum eru sjö skref
9.6 Að skilja athafnir ungbarna
9.7 Tökum eftir dansinum við börn okkar
9.8 Tökum eftir dansinum við börn okkar
9.9 Sjálfstemprun og dansinn
9.10 Að líta undan
9.11 Samantekt
9.12 Nú er komið að ykkur!
10. Hvers vegna skiptir svefn máli?
10.1 Hvernig gekk heimaverkefnið?
10.2 Hvers vegna þurfum við að sofa?
10.3 Svefn
10.4 Aðskilnaður frá barni
10.5 Unnið úr erfiðleikum með aðskilnað
10.6 Algengar orsakir svefntruflana
10.7 Hvað hjálpar okkur að sofna?
10.8 Svefnvandi
10.9 Rútína í kringum það að fara að sofa
10.10 Samantekt
10.11 Nú er komið að ykkur!
11. Sjálfstemprun og reiði
11.1 Yfirlit og næstu skref
11.2 Hvernig gekk heimaverkefnið?
11.3 Reiði og sjálfstæði
11.4 Að takast á við reiði
11.5 Sjáum reiði í öðru ljósi
11.6 Hvenær getur reiði verið gagnleg?
11.7 Hvað er það sem getur gert barn reitt?
11.8 Hvernig við hjálpum barni sem finnur fyrir reiði – 1. hluti
11.9 Hvernig við hjálpum barni sem finnur fyrir reiði – 2. hluti
11.10 Lærum um tilfinningalega umhygð
11.11 Að hjálpa barninu að læra að tempra reiði sína
11.12 Reiði og sjálfstemprun
11.13 Dæmi um samskipti foreldra og barna
11.14 Aðrar nálganir sem hægt er nota
11.15 Sykurpúðaprófið
11.16 Samantekt
11.17 Nú er komið að ykkur!
12. Samskipti og samstilling
12.1 Yfirlit og næstu skref
12.2 Hvernig gekk heimaverkefnið?
12.3 Gagnkvæmnisdansinn: samantekt
12.4 Hvernig við jöfnum okkur þegar hlutirnir fara úrskeiðis: rof og endurtenging
12.5 Dæmi um rof
12.6 Hvernig hægt væri að bæta atburðarásina: endurtenging
12.7 Endurtenging í aðstæðunum
12.8 Endurtenging í samböndum
12.9 Hvað gerist eftir ósætti?
12.10 Mikilvægi þess að biðjast afsökunar
12.11 Hjálpum börnum að læra um rof og endurtengingu
12.12 Nú er komið að ykkur!
13. Lítum yfir farinn veg og fram á veginn
13.1 Yfirlit og næstu skref
13.2 Hvernig gekk heimaverkefnið?
13.3 Hverju hefur ykkur tekist að breyta?
13.4 Spurningar
13.5 Að gera hlutina öðruvísi
13.6 Samantekt á fræðsluefni og verkfærum
13.7 Annað fræðsluefni
13.8 Spurningar í lok námskeiðs
13.9 Solihull þakkar
13.10 Lok námskeiðs: Haldið fram á veginn
Um námskeiðið
Mikilvægustu tengslasamböndin í lífi barns ykkar móta tilfinningalega heilsu og velferð þess, sama hvernig fjölskylda ykkar er samsett. Á þessu námskeiði er rými skapað til að hugsa um og íhuga þroska barns ykkar, hegðun þess og hvernig það tjáir sig.
Að skilja barnið: Frá smábarni til unglings er fyrir alla foreldra, ömmur, afa og umönnunaraðila barna á aldrinum sex mánaða til 19 ára. Upplýsingar, hugmyndir, aðferðir og verkfæri nýtast til að dýpka skilning ykkar á barninu, tilfinningum þess og hvernig þið getið annast og eflt það, sama á hvaða aldri barnið er.
Að skilja barnið: Frá smábarni til unglings er búið til af hópi klínískra sálfræðinga, barnasálfræðinga, hjúkrunarfræðinga, barna- og heimilislækna og það sem máli skiptir, foreldra. Allt sem fram kemur og þið lærið á námskeiðinu byggist á reynslu og er sett fram með það í huga að vera hagnýtt svo það nýtist ykkur og fjölskyldu ykkar í daglegum samskiptum og athöfnum. Einnig lærið þið um undirstöðuatriði geðrænnar heilsu og velferðar, sem og hvernig heili okkar virkar á mismunandi tímum í lífi okkar og hvað það þýðir fyrir hugsun okkar og tjáningu í barnæsku, sem og á fullorðinsárum.
Námskeiðið skiptist í 13 einingar, hver þeirra tekur um 15 mínútur að fara í gegnum og eru þær bútaðar niður í hluta.
Í fyrstu einingunum er fjallað um hugmyndafræði og hugtök hvað varðar leiðir til að hugsa. Þau leggja grunninn að nálgunum og aðferðum sem upp koma síðar, sem þýðir að fara þarf í gegnum námskeiðseiningarnar í réttri röð. Þið þurfið ekki að fara í gegnum allt námskeiðið í einni lotu og mælum við eindregið með að taka hlé inn á milli og gefa sér tíma í að læra og prófa nýja hluti.
Að skilja barnið: Frá smábarni til unglings hentar öllum foreldrum og í hvaða aðstæðum sem er, en mögulega finnst ykkur þið þurfa aðeins sérhæfðari eða persónumiðaðri aðstoð. Þið finnið vísanir í frekari upplýsingar hér og þar í námskeiðinu sem nýta má í þessum tilfellum.
Við vitum að fjölskyldur eru ólíkar og mismunandi á svo margan hátt, svo sem að stærð, gerð og uppruna. Á þessu námskeiði reynum við að fjalla um einhverjar af ólíkum þörfum fjölskyldna en það er ómögulegt að taka tillit til þeirra allra. Ef ekki er komið inn á ykkar persónulegu aðstæður, er ósk okkar samt sú að þið dragið einhverja þekkingu af því sem sett er fram um mótun og eflingu náinna tengsla og sambanda milli foreldra og barna. Að sama skapi eru allar ábendingar um hvernig bæta má námskeiðið vel þegnar.
Fyrir tilstuðlan Geðverndarfélagsins hefur þetta námskeið verið þýtt á íslensku. Heildarviðmót síðunnar er þó á ensku og ástæðan fyrir því er sú að þetta námskeið er útbúið af Solihull aðferðinni í Englandi og hýst á vefsvæðum hennar.



